Sannleikurinn er sár....

09.05.2007 14:44:26 / muggarar

Bænda ráð við svefnleysi

 

 Hér kemur gamalt húsráð úr sveitinni sem mamma kenndi mér þegar ég fór fyrst í borgina og átti erfitt með að sofna vegna alls stressins sem er umvafið borg óttans... og þar sem þessi síða er víðlesin er textinn hafður á ensku

 

  •  
    1. When you are about to go to sleep, put on your favorite pajamas that make you feel most comfortable.
    2. Go ahead and lie down on your bed or chair and close your eyes.
    3. Imagine a night sky, with small, chubby, white stars, and a crescent moon.
    4. Imagine a small, green hill, full of short grass.
    5. Then, imagine a white fence right across the hill.
    6. Visualize a white, fluffy, plump sheep.
    7. Imagine it jumping right over the white fence.
    8. Play it over and over again, counting, "1.. 2.. 3.. 4.. 5.. 6.." aloud.
  •  

    Tips

    • If there are lots of sounds around, imagine some cows in the distance making that sound.
    • If there are people around, (eg. on a plane, downstairs, outside your window) don't count aloud. Just imagine that underneath the sheep it shows a number. Another theory is making the moon in the shape of the number each time.

     


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 21:18:02 / muggarar

Allt er þegar fernt er....

Já ég er kominn með leið á handritsgerð, þrátt fyrir nokkrar (of margar) fyrirspurnir handan Atlantshafsins, þá vestan meginn meira en austan, þá hef ég ákveðið að henda salti á Hell´Gs-Angels protjectið. Jafnvel að maður súrsi það vel og taki það upp á næsta þorra og sjái hvernig það hefur gerjast á þeim tima. 

Næsta verkefni hjá bóndanum er að sansa prófaburðinn, en eins og menn vita er það einn alvesti tíminn hjá lögfræðibændum þessa lands, og mikið að gera í að gata og merkja þessi hvítu grey, ef þið skiljið hvað ég á við..... já það sem áður snéri upp snýr nú niður o.s.frv... 

Svo er grasið að grænka sem er alveg magnað, já og það mun grænka mun meira fram að kosningum, ég meina fyrsta leikdegi sem er 12 maí..., sem jafnframt er seinasti í prófaburði og fyrsti í evróvisijón, allt sama daginn. Já stefnan er sett á fernuna sigur á öllum vígstöðvum og ferna í leiknum við FH.  

 The famous farmer kveður að þessu sinni


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 12:39:41 / muggarar

Handrit- með páskalegu ívafi

Lengi hef ég ætlað að gera kvikmyndahandrit og græða allsvakalega á því. Minna hefur hins vegar orðið úr skrifum enda hægara sagt en gert að skrifa slíkt meistaraverk, ætli ég sé ekki að vinna úr hugmyndum þessa stundina. Enþá hef ég ekki ákveðið titil eða um hvað hún á að vera, en hún á samt að vera stórgóð, og má ekki kosta of mikið, enda ætla ég að sjá um framleiðslu myndarinnar líka. Kannski maður skrifi bara handritið hér kafla fyrir kafla og menn geta lagfært hana eftir þörfum, ætli það hafi verið gert, handrit byggt á bloggfærslum höfundar ásamt athugasemdum lesenda. Þetta gæti orðið moneymaker finn það á mér. En bara til að fyrirbyggja allan miskilning þá á ég samt höfundarréttinn og allan nýtingarrétt. Enda ætla ég einn að græða á þessu..

 Upphaf myndarinnar gæti verið þannig að ég er að elda heima, að sansa nautafille með því að skvetta rauðvíni á pönnuna og allt í góðu. En svo vegna raða tilviljana þá kviknar í öllu saman og á endanum drepst ég og það kviknar í öllu húsinu. Fyrir vikið þá deyja allir í húsinu mínu, Já sorry...  og ok allir voða fúlir og dauðir, ennnnn bíðið bíðið, málið er að okkar tími var ekki kominn og já hmmmmm dauðinn getur ekki tekið við okkur að því að við eigum að vera lifandi en erum samt dauð. Þá kemur svona tvist þar sem við ráfum um án þess að geta nokkuð gert og á meðan funda guð og djöfullin um það hvernig eigi að leysa þennan vanda sem upp er kominn. Þeir geta ekki komist að neinni niðurstöðu og ætla að gera okkur að draugum, en þá kemur hetju karakterinn í húsinu mínu ( einn hina dauðu) og reddar málunum, kemur með slíka ræðu að guð og satan veita okkur öllum reynslulausn sem englar. Og þar sem við erum englar þá getum við ekki dáið og búum öll yfir einhverjum heros gáfum eða eitthvað svoleiðis drasl, sem við fáum a velja. Vandinn er sá að allir þurfa að búa á sama stað, vegna þess að við erum á reynslulausn og þeir verða að geta fylgst með ökkur. Allir verða voða sáttir fyrst og svo fara allir að fokka í öllum enda geta þau ekki dáið. Áendanum verður sem sagt allt brjálað og guð og satan ekki sáttir og ætla að taka af öllum engla réttindin. En þá kemur eitthvað tvist og fyndni karakterinn gerir eitthvað samviskusamlegt og shit og allir verða voða góðir og svo videre. Síðan kemur í ljós að þegar englaréttindin eru tekin af öllum þá vakna þeir upp við vonda draum, þetta var bara test hjá guði um hvort hann ætti að kveikja í húsinu... Svarið var s.s. nei að því að á Bryggjunni býr bara eðalfólk. Og Hollywood endirinn er kominn og allir fara sáttir heim.

 

Veit ekki með ykkur en, ég held að þetta sé money maker...... og það ekki lítill!!!!!!!!Þetta verður svona final destination, ghost, bruce almighty fílingur, og dogma var hún ekki eitthvað svona?Og svo má ekki gleyma páskaboðskapnum, dauði og upprisa mín!!! Án þess að ég sé með einhverja kaldhæðni út í raunir krists, en allavega gleðilega páska!!  

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 00:27:08 / muggarar

verslunarmannaHELGI

Já það stefnir í það að hittingur gamla verslunarmannargengisins muni eiga sér stað um páskanA, þó ekki í Vestmannaeyjum. Heldur í fiskiplássinu Akranesi, sem ekki er svo langt frá Reykjavík fyrir þá sem ekki vissu.

Verða þetta miklir fagnaðarfundir enda um einvalalið að ræða. Allt frá bústnum Hólmurum til kviðslitina Breiðhyltinga, já hér verður um tímamótaatburð í Íslandssögunni að ræða. Menn ætla´jafnvel að fórna nýfæddum lömbum á grillið í tilefni tímamótana, og drekka blóðið úr þeim í Hrútshornum, ættuðum úr Hrútarfirðinum nánar tiltekið frá fjarðarhorni. Sunginir verða drykkjusöngvar frá gamalli tíð í bland við hipp hopp rímur að hætti meistara Hell´G, og FannZA, Muggurinn gæti jafnvel reynt fyrir sér.

Eitt er þó á hreinu, enginn verður svikin af þessum tímamótum í sögu lands og þjóðar. Má búast við muggi á háu stigi, nánari fréttir verða kannski birtar síðar...

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 22:40:01 / muggarar

Helvíti

Ég hata þetta helvíti, af hverju er engin sanngirni í fótbolta????? af hverju!! Hvernig getur arsenal yfir höfuð tapað leik, þetta er svo mikið yfirburðarlið að ég get ekki skilið af hverju þeir tapa??? af hverju!

Já ég er fokking reiður... ekki bætti úr skák áðan, að ég fór í ísbað eftir æfingu... já fokking ísbað, og blóðið hætti eftir það að renna í fingurna. Djöfull var þetta vont, kuldi er skelfilegur. Mæli ekki með þessu.

Annars fer að detta á fimulfamb, engin ósanngirni í því. Sá besti einfaldega vinnur. Sem er ég!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 00:05:12 / muggarar

Klám

já þvílík hamingja hjá karlpeningnum þessa dagana... fullt af druslum á leiðinni á klakann! Tala nú ekki um fyrir piparsveina.. já þvílíkt og annað eins hefur bara ekki átt sér stað, vá hvað ég er spenntur!!! Það fyrsta sem ég ætla að gera þegar druslurnar koma, er að lauma mér inn á ráðstefnuna á fölsuðum blaðamannapassa. Því næst mun ég reyna að ná augnsambandi við mestu drusluna á staðnum, og svo setjast í fangið á henni og spyrja hvort hún sé drusla... það ætti að brjóta ísinn!! Já svo ætla ég að plata hana til að koma með mér á hótelherbergi með mér en spyrja hana fyrst hvort hún þekki ekki fleiri druslur sem vilja kannski fá sér í glas með mér. Því næst lokka ég þær inn á herbergið mitt, sem er í raun ekki hótelherbergi heldur dulinn tökustaður!! Þegar þangað er komið mun ég svo plata þær í póker og áður en þær vita af verða þær alsnaktar og fullar og til í hvað sem er!!  þá ætla ég að vera tilbúinn með sápuvélar og fleira fyrir stelpurnar og þær verða fokking crazy. Þetta ætti að skila mér mörgum milljónum í kassann

En já shit svona halda þessar feministaskessur að allir karlmenn hugsi, já Ísland mun verða að einum alsherjar kynlífssvall stað í 5 daga. Já það mun verða alsherglundroði í samfélaginu og ekki ólíklegt að kvenpeningur þessa lands neyðist til að flýja land því karlarnir munu bara ekki stoppa að því að það er klámráðstefna á hótel Sögu. Þvílík helvítis vitleysa!!! hætið að auglýsa þetta feministar og einbeitið ykkur að einhverju öðru, eins og að lifa eðlilegu lífi!!

Takk fyrir mig, þetta var hersla dagsins!!! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 23:37:19 / muggarar

Bikarár!!

Ég vill byrja á að óska ÍRingum til hamingju með bikarinn í körfunni, þeir áttu hann skilið einfaldlega vegna þess að þeim tókst að vinna frændur mína í Borgarnesi... já það eitt og sér er afrek. Vill líka minna á að seinast þegar ÍR varð bikarmeistari 2001, þá varð ÍA meistari í knattspyrnunni! 

En annars er deildarbikarinn farinn af stað og fyrsta umferð búinn. Jafntefli í fyrsta leik við Fjölni 2-2, ekki nógu gott!! 2-0 yfir og svo klúður í lokin.. kláraði 90 mins en enþá má bæta við formið sem er ekki enn nógu gott.. HK vann 3-0 fyrir norðan, ánægður með það, en Boggi spilaði hafsent og hélt hreinu. Svo skoraði Drési í 6-4 tapi Þróttara fyrir keflavík!! já gott ef hann þarf ekki að færa sig aftur í vörnina líkt og Boggi.

Ljóst að bæði Þróttarar og við Skagamenn þurfum að spýta í lófann ef við ættlum okkur að komast í úrslit og eiga þar af leiðandi möguleika að mæta HK sem er í hinum riðlinum.

Vill enda þetta á að minna á hrafnaþingið við Hvalfjarðargöngin.... veit að það boðar ekki gott, held að það boði vont veður?? en ágæt væri ef einhver gæti komið með útskýringu á hrafnaþingi, enda er ég búinn að bíða í viku eftir brjálaðis veðri... hmmmm

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 15:37:31 / muggarar

ég mæli með

já nú fer veður batnandi á klakka vorum, en ekki láta blekkjast því það fer að skella á mikill bylur... já ég fékk þetta staðfest í gær á leiðinni á skagan þar sem saman komið var hrafnaþing. En eins og allir vita boðar það ekki gott, heldur þvert á móti...

En já ok nóg af veðrinu, því ég ætla að mæla með blekkingarskilinu fimbulfamb. Já við eruk að tala um þvílíka snilld að annað eins hefur ekki sést. Og já ef þig langar að kaupa það þá er það ekki hægt, spilið er þó fáanlegt a´svarta markaðnum svokallaða fyrir nokkra Brynjólfa. Já þetta var spilað á Bryggjunni á laugardaginn, og nokkuð óvænt þótti mér að ég vann ekki yfirburðasigur, hins vegar voru það tveir hálfir meginlandsevrópubúar sem stóðu upp sem fambmeistarar, eða voru fyrir framan mig sem gerir þá sjálfkrafa að meisturum. En þetta voru nautabaninn og Nasistinn, og menn hljóta að sjá við hverja ég á!

Þá vill ég benda mönnum á að senda mér rauðvín ekki seinna en núna, menn virðast hafa miskilið leikinn eitthvað, því ég ætla ekki að kaupa rauðvínið. Þið sjáið um það og fáið í staðin rauðvínsdóm.... Skilið!? já skjótist nú í vínbúðina og kaupið nú eins og eitt stykki a fdýrindis rauðvíni, sem þið getið svo keypt meira af reynist dómurinn góður....

þangað til næst.. Hell´G


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 22:06:41 / muggarar

Nýr liður!!!!!!!!

Já gott fólk ég hef ákveðið að verða við fjölda áskorana og dæma vín á þessari síðu. Þetta fer þannig fram að þið sendið mér vín og ég dæmi vínið. Mæli með að þið sendið mér strax þau vín sem þið viljið fá alvöru dóm á, enda er um takmarkað magn sem ég kemst yfir að dæma. Þetta hentar ákaflega vel fyri fólk sem er að huga að giftingum,(Boggi og Rut þurfið þið ekki að fara að huga að því?) stórafmæli, já eða rómantíska kvöldverðin(Andrés það þýðir ekkert að elda á fullu ofaní konuna og vera svo bara með eitthvað drasl vín), eða einfaldlega partýið. Ég mun meta hvert vín af mikilli kostgæfni og birta dóminn á sunnudegi.

Til að þið áttið ykkur betur á þessu kemur hér fyrsti dómurinn

Senoiío de los Llanos, gran reserva 1999, Valdepneas

Fyrsta fylling á glasinu gengur ekki vel, lekur meðfram flöskunni. Ekki nógu sáttur við flöskuna og því fer ég í smökkunina með mikilli varkárni. Lyktin er ekki mikil sem bendir til þess að ekki sé mikið berjabragð af víninu, bendir til þess að héraðið sé frekar þurrt. Hmmmmm já grunur minn reyndist réttur ekkert berjabragð. Það hefði átt að þýða það að það væri kraftmeira í staðin, en nei það er það ekki. Skortur á persónuleika myndi einkenna þetta vín, já hálf bragdauft vín. Bendir til þess að héraðið sé bæði þurrt og ekki nógu hlýtt á nóttuni, jafnvel inn í miðju landi, Madridar vín jafnvel allavega í grendinni. Fylling vínsins er afbragðsdöpur en þó rennur það ljúft niður, alls ekki vont vín, en vantar kraftinn. Vínið er frekar ljóst sem bendir jafnframt til þess að berin séu eitthvað léleg. Kannski um lélegan árgang að ræða...

Niðurstaða: þurrt, lítið berjabragð og pínu súrt, ljóst. Hentar ekki vel til partýdrykkju, hvað þá giftingar, átta mig ekki á matnum en gæti trúað því að það sé tilvalið með vel pipruðu kjöti...

Einkunn 5,8 af 10

Já það er Weekend sem kveður á þessu laugardagskvöldi..  


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 23:26:36 / muggarar

Mugg dagsins

Já það eru engir aðrir en fjarskyldir frændur okkar danir sem fá þann heiður að þessu sinni. Djöfull eru danir leiðinlegir, líta á Ísland sem einhverja vitleysingja á eyju út í ballarhafi. Fjandskapur minn á Dönum er tiltölulega nýr af nálinni og má segja að hann hafi stigmagnast á árinu 2006 og náði hámarki nú rétt áðan. Loksins fáum við tækifæri til að vinna þessa andskota og aumingja, sem halda því fram að við séum upp til hópa kaldrifjaðir glæpamenn sem sleikja sig upp við rassinn á rússneskum peningum með blóðbragði. Já ég hélt að þessi vika myndi sko aldeilis sýna þessum Dönum að Ísland er best í heimi, allavega betri en Danmörk... Bankarnir byrjuðu með góðu fordæmi, sýndu að þeir standa ekki á brauðfótum, frekar peninga fótum. Og þess vegna hélt ég að "strákarnir okkar" myndu nú láta kné fylgja kviði og sameinast í íslensku útrásinni og valta yfir Danina í fyrri hálfleik og baka svo yfir þá í seinni hálfleik. Ekki er hægt að segja að mér hafi orðið að ósk minni, grátlegt tap, já fokking grátlegt. En þar sem ég græt ekki þá hef ég nú ákveðið að í nánustu framtíð muni ég flytja til Danmerkur og geri allt crazy í landi útrásarinnar og svoleiðis starta þar alíslenskri mafíu sem muna ganga að Danmörku dauðri, ég skal sko mjólka þá fram í rauðan dauðan og kúga þá þá til hlíðni.

En þetta er komið gott, vona bara að menn nái boðskap þessarar frásagnar, sem er t.d. sá hlær best sem síðast hlær, já eða þeir seinustu verða fyrstir, eða það sem ekki drepur okkur það styrkir okkur, en síðast en ekki síst Ísland bezt í heimi!!

Já ég fer bitur til náða.. þangað til næst, Hell´G 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 23:35:10 / muggarar

Wilson Mugga...

já það er allt að gerast á klakanum.. Nígerískur körfuboltamaður er mættur til reynslu hjá meistarflokki ÍA og fróðlegt verður að sjá hvort að hann muni plumma sig. Reyndar hefur hann ekki staðið sig neitt gríðarlega vel auk þess sem hann gerði sig lítið fyrir og tók eina tveggja fóta á mig í reit og hitti mig bæði í hnéð og öklann... já enda með stórar labbir, en að sjálfsögðu stóð ég upp eins og skot enda hraustur með afbrigðum! 

Svo má ekki gleyma því að á morgun kemur stórveldið úr Kóp í heimsókn á skagann já við erum að tala um rauðhvítu slátrarana úr fossvogsdalnum og er enginn annar enn hinn spænsk ættaði nautabani Finnbog Llorenz sem þar fer fremstur. Menn tala um stríð á morgun, aðrir segja að hér sé um einvígi þeirra weekends(ég) og fimmbó, aðrir og jafnframt stærri hópur segir hins vegar að um einelti verði að ræða og randaflugurnar af skaganum muni stinga fast úr geysihröðum sóknum sínum, Baneitraðar sagði einhver... Ekki ætla ég að segja til um hvernig fer en þó mun ég lofa því að skora mikið af mörkum, en ég vill samt ekki segja hversu mörg enda vill ég ekki lofa upp í ermina á mér... 

Já og svo vill ég enda á að segja við ykkur íslenska landsliðið í handbolta; "gerum okkar, gerum okkar besta!" því ef þið gerið það þá erum við stolt af ykkur... já það er bannað að gagnrýna íslensa landsliðið í handbolta því við stöndum með þeim í blíðu og stríðu.... eða þetta var það sem maður heyrði eftir úkraínska stórslysið, veit ekki hvort það hafði áhrif en við unnum frakka, kannski ættu Englendingar að taka þetta upp í knattspyrnunni aldrei að vita nema þetta virki, en sé það seint fyri mér að England mætti á HM og tapaði fyrir USA t.d. að menn myndu neita að gagnrýna liðið, nú verðum við bara að standa þétt við bakið á okkar mönnum og styrkja þá í þessu verkefni.. NEI svona virkar þetta ekki þarna úti... en ef þið hafið haldið að íslenska pressan hafi einhverntíma verið óvæginn í garð íslenskra íþróttamann þá er það vitleysa.. íslenskir íþróttamenn lifa í bólstruðu umhverfi. Vonandi að það skili sér á HM og við verðum werltmeister eða eitthvað í þá áttina

En Hell,G kveður í bili 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 15:08:11 / muggarar

snjór snjór snjór

Já það er vetur úti eins og fer ekki fram hjá mörgum á þessum kalda klakka og færð á vegum fer eftir því. En færð á vegum og útbúnaður bíla er einmitt umræðuefni dagsins... málið er að Reykvíkingar kunna ekki að keyra í þessum framandi aðstæðum og sást það best í gær að þegar byrjaði að snjóa urðu 20 árekstrar í borginni á 2 klst. já þetta eru hálvitar hérna í umferðinni, sumir aka á 10 en aðrir halda áfram á 100 og það er slæmur kokkteill.

Hins vegar gerðist það í gær að undirritaður átti í mesta basli með að halda bíl sínum á réttum vegarhelmingum. Ég byrjaði á því að missa bílinn þvers og krus á veginum í átt að Bryggjunni og fór á rangan vegarhelming á blindhæð, en sem betur fer kom enginn á móti mér því þá hefði viðkomandi væntanlega látið lífið enda Getz engin smábíll, hvað þá með mig sitjandi í honum. Svo gerist það að ég er að koma úr Egilshöll með Bogga að pabbi hringir í mig meðan ég er að keyra og hann var eitthvað að spyrja mig um dekkinn á bílnum hjá mér, sem eru ónelgd og ekki upp á marga fiska. Ég segi síðan ´"já ég er reyndar búinn að missa bílinn einu sinni í dag" og um leið og ég nefni það þá gerist sami hlutur aftur og ég fer að zikk zakka á veginum og hendi símanum frá mér og eftir mikil átök hitti ég á réttan vegarhelming fyrir umferðaljósin sem voru framundan. Þetta fannst okkur nett fyndið, en ég var ekki hættur því á næstu ljósum kemur rautt og ég ætla nú bara að stoppa en nei hann rann bara og  rann. Viðbrögð mín voru c.a. svona "æjj æjj æjj æjj og svo bara jæja og ákvað ég að keyra bara yfir á rauðu og slapp við alla bílaumferð. En mæli með þessu, þetta er nett gaman. Og ef einhver heldur að ég sé svona lélegur bílstjóri, þá skal sá hin sami hugsa sig betur um, því hér var eingöngu um léleg dekk og bilaðan bremsubúnað að ræða....

kveð í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 17:30:51 / muggarar

Herslan!!!

já fyrsta hersla ársins fær enginn annar en drési drulla, já og af hverju fær hann þann heiður? Jú þar sem honum er verulega umhugað um að standa sig í heimilisstörfunum þessa daganna, og það á kostnað mikilvægra pókerkvölda... já það er ljóst að konan hefur náð yfirhöndinni í sambandinu!! Drési það er tvenns konar fólk í heiminum, það eru sigurvegarar og það eru lúserar, og ég mæli með að þú farir að taka þig á í þeim efnum svo að þú endir í réttum flokki eins og sönnum muggara sæmir...

                        

Það er engin afsökun að þurfa að elda ofaní konuna, taka upp úr þvottavélinni, skúra og þetta drasl. Taktu þér taki drengur, ef ekki munu birtast regluleg innskot hér um hversu linur þú ert að verða

Gott fólk ekki verða hissa þó að næst þegar þið sjáið drésa verði hann kominn með sítt hár og brjóst og hver veit nema að það vaxi á hann gat….. jæja kveð í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 15:30:30 / muggarar

það er komið!!!!!

Já árið sem menn hafa verið að bíða eftir, menn hafa jafnvel gengið svo langt að segja að þetta ár muni jafnast á við fæðingu frelsarans og að nýtt tímatal verði tekið upp... já menn spyrja sig kannski hver ástæða þessara óskapa sé. og jú hún er einföld, tími muggara tekur nú við.. Þeir sem trúa á hinn góðu og gegnu gildi sem gera menn að góðum muggara verða jafngild boðorðunum tíu og jafnvel er talið að hinn mikli muggari muni fæðast í mynd skapara síns!!!! (Fallegur andskoti)
Já afhverju núna??? jú skapari himingeimsins hinn mikli muggari sá að nú þurfti að grípa til örþrifa ráða og stoppa hið mikla hatur sem ríkir í heiminum, með því að koma á lífsgildum sem geta komið í stað guðsdýrkunnar og blóðsúthellinga í nafni trúarinnar. Þess vegna er mikilvægt að muggarar standi nú saman og beri út boðskap þessara nýju lífsgilda.

Bið þó fólk að halda sönsum enda er hér um að ræða breytingu sem kemur aftan að fólki eins og þoka á heiðskírum degi sem engin gerir ráð fyrir. Já þessi lífsgildi muni síast inn í ykkar takmörkuðu heilabú og fyrr en varir verðið þið að miklum og góðum muggurum. Heimurinn mun þá einkennast af öfgakennt, fáfræði, kjaftasögum, og enginn mun láta neina vitleysu yfir sig ganga.. já hinn fullkomni heimur ekki satt!! en varist því muggarar eiga sér djöfulmynd, já hann gæti verið næsti maður hann gæti verið að horfa á þig. Þið munið þó fljótt sjá í gegnum gervi hans því djöfullinn er maðurinn/konan sem brosir alltaf, þrífur, eldar, gerir allt sem til hans er ætlast og jafnvel meira til.... já slík persóna er ekki til, þess vegna er hér um að ræða sjálfan djöfulinn!!! verið því á varðbergi á nýju ári og breiðið út boðskap þessara lífsgilda sem boðuðuð eru hér á þessari síðu, og brátt munn heimurinn aftur eiga sér viðreisnar von!!

kveð í bili Helvítis´Geið
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 16:08:25 / muggarar

Nýjasta tækni og vísindi

Vísindateymi Muggara hefur gert enn eina uppgvötvunina, Andreas Bartsch okkar sérfræðingur í ofdrykkju hefur nefilega komist að merkilegri niðurstöðu. "Ef menn hætta að drekka verða þeir gáfaðari en þegar þeir voru fullir, Lærdómurinn sem helst má draga af þessari rannsókn er sá, að ef áfengissjúklingar hætta að drekka getur heilinn í þeim endurnýjað að nokkru leyti það sem tapast hefur og starfað betur,“ segir Andreas Bartsch, taugageislunarlæknir við Háskólann í Würzburg í Þýskalandi.

Ekki að ég vilji gera lítið úr félaga mínum Batsch, en ég hefði nú getað hent þessari niðurstöðu fram eftir bara eitt almenilegt helgarfyllerí. Væri ansi slæmt ef maður drykki bara og yrði bara vitlausari og vitlausari og myndi ekkert endurnýja af sellunum sem maður skvetti yfir við drykkju næturinar.

Engu að síður góðar niðurstöður fyrir menn sem drekka sig í hel, í þau fáu skipti sem þeir þó drekka... og almennt aðra drykkjusjúklinga, það er altaf von!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill
fimbulfambarar
Myndasöfn